Mér finnst uglur æði. Veit ekki afhverju, þær eru bara eitthvað svo krúttlegar og gáfulegar.
Hef samt heyrt að þær séu í raun ekkert sérstaklega vel gefnar... En eníhúúú - hér er Olli ugla!
Uppskriftin er héðan: http://www.purlbee.com/big-snowy-owl/ nema Olli er töluvert minni, prjónaður úr þreföldum plötulopa (tveir mismunandi brúnir litir og einn hvítur þráður) á prjóna nr. 6. Í uppskriftinni eru augun prjónuð en ég heklaði þau, notaði kambgarn í augu og gogg.
Ég veit ekki alveg hvar Olli endar, kannski bara sem púði ef ég tími ekki að gefa hann - amk er heimiliskötturinn Enja afskaplega ánægð með félagsskapinn :)